Forsíða
Skartgripir
Sölustaðir
Þjónusta
Umfjöllun
Njarðarskjöldur
Um Gullkúnst


Play


Njarðarskjöldur

NameName
 

Gullkúnst hlaut Njarðarskjöldinn "ferðamannaverslun ársins" árið 2010

Njarðarskjöldurinn, var veittur í fimmtánda sinn  í Ráðhúsi Reykjavíkur . Um er að ræða hvatningarverðlaun og er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára.

Að verðlaununum standa Reykjavíkurborg, Miðborgarin okkar, Global Blue, Iceland Refund, Félag atvinnurekenda og Kaupmannasamtökin.

Við tilnefningu ferðamannaverslunar ársins er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára. Horft er  til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefs og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig metnir sérstaklega svo sem þjónustulund, opnunartími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka auk útlits og lýsingar verslunarinnar. Einnig er framkoma og  tungumálakunnáttu starfsfólks metin og þekking þeirra á söluvörunum.

Verðlaunahafinn í ár er verslunin Gullkúnst Helgu sem sérhæfir sig í sölu á íslensku skarti. Það sem einkum stendur upp úr við valið að þessu sinni er öflug sala til erlendra ferðamanna en einnig einkar glæsileg verslun og fjölbreytt úrval íslenskrar skartgripahönnunar. Helga Jónsdóttir, Sveinn Guðnason og aðrir gullsmiðir í versluninni hafa nýtt hraun og íslenska steina í miklum mæli og þannig lagt grunninn að miklum vinsældum þess konar skarts meðal erlendra ferðamanna og eru með þessa séríslensku nálgun sína í stöðugri mótun og þróun.

Uppbygging verslunarinnar, sem er stærsta skartgripaverslun landsins, minnir um margt á listmunasýningu en gestir hennar geta virt fyrir sér fjölbreytta skartgripaflóru í þartilgerðum upplýstum sýningarkössum úr tekki og gleri.

Helga setti fyrstu verslunina á fót á Laugavegi 40 en flutti sig síðar yfir á 45 en opnaði í núverandi húsnæði á Laugavegi 13, þar sem verslunin Habitat stóð áður, árið 2005. Hún hefur því frá byrjun haldið sig við þessa helstu verslunargötu Reykjavíkur. Hún segir erlenda ferðamenn mikilvægan viðskiptahóp, sérstaklega fyrir sumartímann. Þeir hrífist fyrst og fremst af áferð skartgripanna og upplifa að hér sé um séríslenska hönnun að ræða. Auðsjáanlegt er að hver gripur er handgerður, einstakur og óvenjulegur. Það vekur einnig athygli að í mörgum tilvikum leitar Helga og hennar samstarfsfólk ekki langt yfir skammt í leit sinni að hráefni í skart verslunarinnar. Hún segir Heiðmörk, sem tilheyrir höfuðborgarsvæðinu, kjörlendi fyrir fallegt hraun sem hún og samstarfsfólk hennar nýtir til skartgripagerðar.

Helga segir að erlenda ferðamenn oft tjá sér undrun sína með fjölda gullsmiða, hönnuða og fallegs handverks í miðborg Reykjavík og að gæði varanna komi þeim oft á óvart. Ekki spillir að veikari króna eykur kaupmátt þeirra og endurgreiðsla virðisaukans er skilvirk og einföld í borginni.

 

njardarskjoldur.pngnjardar02.jpg

Name 18.jpgshopping  54.jpg

Namekvennamenning.jpgatl2.jpg

Laugavegi 13 s: 561-6660 fax: 561-6689 - gullkunst@gullkunst.is