Forsíða
Skartgripir
Sölustaðir
Þjónusta
Umfjöllun
Njarðarskjöldur
Um Gullkúnst


Play


Um Gullkúnst

Smá brot af umfjöllun!

Ætt Helgu er sannkölluð gullsmíðaætt. Leifur Jónsson gullsmiður, sem lengi rak Gullhöllina, er bróðir hennar, móðurbróðirinn er Jóhannes Leifsson gullsmiður og afabróðirinn var Sigmundur Grímsson sem flutti til Vancouver í Kanada fyrir margt löngu, stundaði þar gullsmíðar og var með fjölda fólks í vinnu.
-Vikan 2003

Það er alltaf gaman að koma í Gullkúnst Helgu á Laugavegi 13 og virða fyrir sér alla listsköpunina sem þar á sér stað.  Skartgripahönnuðurnir eru óhræddir við að blanda saman silfri, 14 karata gulli og hreinu 24 karata gulli með tilheyrandi demöntum og er útkoman oft listaverki líkust.
-Miðbæjarpósturinn 2009

,,Það er langt síðan ég veitti Helgu athygli og ég á skartgripi sem hún hefur hannað,“
-Sigríður Anna Þórðardóttir við Morgunblaðið 2006

Það er eins og ganga inn í listsýningu þegar komið er inn í Gullkúnst Helgu á Laugavegi 13. Hönnunin er einföld og stílhrein og skartgripirnir fá svo sannarlega  að njóta sín auk þess sem innréttingin hæfir vel tíðaranda hússins sjálfs. Sýningarskáparnir eru úr tekki og gleri og engu líkara en fólk sé að skoða listmunasýningu þegar gengið er á milli þeirra. Og það sem meira er, viðskiptavinirnir geta gengið út í búðargluggann sjálfan og skoðað það sem þar er til sýnis. Þetta óvenjulega fyrirkomulag glæðir verslunina miklu lífi og er gjörólíkt því sem almennt gerist þar sem sýningargluggarnir eru öllum lokaðir.
-Frjáls verslun 2006

Gullkúnst Helgu, við Laugaveginn, fékk í gærkvöldi Njarðarskjöldinn, hvatningarverðlaun ferðamannaverslana í Reykjavík, sem Reykjavíkurborg og samstarfsaðilar standa að árlega. Verðlaunin afhenti Jón Gnarr borgarstjóri á opnum íbúafundi í Ráðhúsinu.
Helga Jónsdóttir tók við verðlaununum en Gullkúnst Helgu þykir hafa skarað fram úr á árinu meðal ferðamannaverslana í miðbænum. Helga, Sveinn Guðnason og aðrir gullsmiðir í versluninni hafa nýtt hraun og íslenska steina í miklum mæli og þannig lagt grunninn að miklum vinsældum þess konar skarts meðal erlendra ferðamanna
-Morgunblaðið 2010

Hönnun okkar á sterkar rætur í náttúrunni og við teflum saman íslensku hrauni við silfur og gull, steina og ræktaðar perlur. Þessar sterku andstæður í efni, áferð og litum eru mjög áhrifamiklar. Hér á bæ hafa gull- smiðirnir einnig næmt auga fyrir nýjungum og eru óhræddir við frumleika í hönnuninni.
-Frjáls verslun 2009

Aðalsmerki Gullkúnstar Helgu er handunnið skart úr smiðju Helgu Jónsdóttur og Sveins Guðnasonar.  Þar er íslensku hrauni teflt saman við ræktaðar perlur, silfur, gull og steina.  Þannig skapast sterkar aðstæður í litum, efnum og áferð og útkoman er glæsileg.
-Nýtt líf 2005

Þau Helga Jónsdóttir og Sveinn Guðnason tefla hiklaust saman íslensku hrauni við ræktaðar perlur, silfur, gull og steina.  Sterkar andstæður í litum og efni fá notið sín í smíðavinnu gullsmiðanna tveggja sem gæta þess vel að láta hrjúfa áferð efnisins njóta sín sem best.  Það er hvorki tilgerð eða tepruskap að finna í skartgripum þeirra.  Hér eru sannir listamenn að verki.
-Tímaritið Lífstíll

Íslensk náttúra var Sveini Guðnasyni gullsmiði hjá Gullkúnst Helgu efst í huga þegar hann hannaði silfurmen utan um hraunmola sem hann tíndi "annað hvort í Heiðmörkinni eða Hafnarfjarðarhrauninu" að eigin sögn. Hraunmolinn er umvafinn fíngerðu víravirki úr silfri sem unnið er á óhefðbundinn hátt þannig að það tekur á sig rauða, brúna og gula liti í náttúrulegum tónum. "Maður reynir að búa til mínímal myndir út frá íslensku landslagi eins og það kemur manni fyrir sjónir," segir hann þegar hann er inntur eftir því hvaðan innblásturinn er fenginn við smíðina.
-Morgunblaðið 2006

Ein sérstaða Gullkúnstar Helgu eru óhefðbundin form demanta. Sérstaklega má nefna óslípaða og óflokkaða hrádemanta og óvenjulega skorna græna demanta.
-Miðbæjarpósturinn 2008

,,Ég hrífst af stórum skartgripum og silfurskart Helgu var óskaplega fallegt en jafnframt sígilt.“
-Jónína Bjartmarz við Morgunblaðið 2006

Í versluninni er selt úrval innfluttra skartgripa sem og mjög nútímaleg armbandsúr eftir þýska hönnuðinn Rolf Cremer og líkjast úrin frekar fallegum armböndum en úrum.
-Tímaritið Lífstíll

Helga Jónsdóttir, Sveinn Guðnason og aðrir gullsmiðir í versluninni hafa nýtt hraun og íslenska steina í miklum mæli og þannig lagt grunninn að miklum vinsældum þess konar skarts meðal erlendra ferðamanna og eru með þessa séríslensku nálgun sína í stöðugri mótun og þróun.
-Handverk og Hönnun

Við tilnefningu ferðamannaverslunar ársins er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára. Horft er  til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefs og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig metnir sérstaklega svo sem þjónustulund, opnunartími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka auk útlits og lýsingar verslunarinnar. Einnig er framkoma og  tungumálakunnáttu starfsfólks metin og þekking þeirra á söluvörunum. Verðlaunahafinn í ár er verslunin Gullkúnst Helgu sem sérhæfir sig í sölu á íslensku skarti.
-Jón Gnarr, Borgarstjóri Reykjavíkur

Þau hjá Gullkúnst Helgu eru óhrædd við að prufa eitthvað nýtt og auka enn frekar á fjölbreytileikann. Allt saman íslensk hönnun og íslensk eðalsmíði með sína sérstöðu sem hvergi annarsstaðar er hægt að fá.
-Miðborgarpósturinn 2010

Þótt skartgripirnir í Gullkúnst teljist íslenskir, og talsvert notað af íslenskum steinum við gerð þeirra, skreyta demantar og eðalsteinar gjarna gripina.
-Morgunblaðið 1999

Ísmót Samtaka Iðnaðarins. Sigurvegari í tískuteymi ársins 2007:
 • Klæðskeri: Berglind Ómarsdóttir, Kjólum og klæði
• Hársnyrtir: Magnús Þór Reynisson, Hjá Jóa og félögum
• Snyrtifræðingur: Berglind Alfreðsdóttir, Comfort snyrtistofu
• Gullsmiður: Helga Jónsdóttir, Gullkúnst Helgu
• Ljósmyndari: Ágústa Kr. Bjarnadóttir, Barna- og fjölskylduljósmyndum

Um salinn óma hamarshöggin frá gullsmiðunum en verkstæðið í Gullkúnst er innan við verslunina. Þessi nálægð verslunar og verkstæðis skapar nánd milli hönnuða og viðskiptavina með sérstakar óskir um smíðina.
-Frjáls verslun 2008

Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, afhenti Franch Michelsen úrsmíðameistara og Gullkúnst Helgu við Laugaveginn fyrstu viðurkenningar MND-félagsins um að aðgengi verslananna væri til fyrirmyndar fyrir hjólastóla.  Viðurkenningin er í formi límmiða sem settur er upp við inngang verslananna þar sem fram kemur að einstaklingar í hjólastólum séu sérstaklega velkomnir.Atburðurinn markar upphaf á sérstöku átaki MND-félagsins til að bæta aðgengi fyrir hjólastóla í fyrirtækjum og stofnunum.
www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3755

Laugavegi 13 s: 561-6660 fax: 561-6689 - gullkunst@gullkunst.is